Það getur verið erfitt að finna sanna ást, en við hjá Sambandsmiðlun trúum því að allir geti fundið hina einu sönnu ást. Við höfum kynnt okkur íslenskan stefnumótamarkað og komist að því að margir einhleypir eru orðnir þreyttir á að þræða bari eða spjallvefi. Erfitt þykir að grisja út þá sem eru í heiðarlegri leit að maka og forðast þá sem villa á sér heimildir eða eru jafnvel einungis í leit að skammtíma skemmtun.
Með þetta að leiðarljósi ákváðum við hjá Sambandsmiðlun að setja á laggirnar alvöru miðlun fyrir alvöru fólk. Markhópur okkar er fullorðið fólk sem veit hvað það vill og er einlægt og opið í makaleit sinni. Ef þetta á við þig, hafðu samband og kynntu þér þá þjónustu sem í boði er.
Þetta er það sem viðskiptavinir Sambandsmiðlunar hafa að segja um þjónustuna okkar.
Sambandsmiðlun er virkilega góð og þörf viðbót við
stefnumótamenninguna á Íslandi. Mikill fjölbreytileiki er í viðburðum
og þjónustan er virkilega fagleg og flott. Ég skráði mig í
einstaklingsþjónustuna (VIP) og sé svo sannarlega ekki eftir því.
Eftir mjög gott og ítarlegt viðtal var ég send á stefnumót. Það er
skemmst frá því að segja að pörunin gekk algjörlega upp og náðum við
mjög vel saman og erum komin í fast samband. Starfsmenn
Sambandsmiðlunar unnu því heimavinnuna sína vel og voru jafnframt með
eftirfylgni eftir stefnumótið sjálft. Ég get hiklaust mælt með
þessari þjónustu, því annars væri ég líklega bara enn ein heima að
horfa á sjónvarpið :)
Kona (38 ára)
Ég frétti af Sambandsmiðlun í gegnum vinafólk. Ég var búin að vera lengi ein og
fyrir löngu búin að gera mér grein fyrir að enginn myndi mæta heim í stofu og ekki nennti ég að
hanga á börunum. Ég var heldur ekki spennt fyrir þeim möguleikum sem internetið hefur.
Þess vegna fannst mér þessi kostur fýsilegur. Ég kynnti mér hvernig Sambandsmiðlun virkar
og ákvað að ég hefði engu að tapa. Ég valdi VIP þjónustuna vegna þess að ég var tilbúin til að
eignast lífsförunaut. Í þessari þjónustu fólst að ég myndi fara í ítarlegt viðtal við félagsráðgjafa
sem ég og gerði 8. nóvember síðastliðinn. Það gekk mjög vel og reyndist mér auðvelt að svara
spurningum hennar um fjölskyldu, vini, áhugamál, lífsviðhorf ofl. Í lok viðtalsins sagði hún mér
að hún hefði ákveðinn mann í huga. Hann hitti ég svo tveim dögum seinna. Við Jakob áttum
langt og gott spjall á kaffihúsi og fundum strax að okkur leið vel saman. Við héldum áfram að
hittast og fyrr en varði vorum við ástfangin upp fyrir haus. Við erum núna í föstu sambandi og
mjög hamingjusöm. Ég er alveg viss um að leiðir okkar hefðu ekki legið saman ef ekki væri fyrir
Sambandsmiðlun. Við erum sammála um að eftir svona viðtal séu miklar líkur á að hitta fólk í
heiðarlegri makaleit.
Katrín (52)
Ég er ekkill og heyrði af Sambandsmiðlun í auglýsingu í útvarpinu. Það átti ekki
vel við mig að fara einn á mannamót. Mér fannst ég tilbúinn til að kynnast góðri konu og þess
vegna ákvað ég að panta mér tíma hjá Sambandsmiðlun. Viðtalið við félagsráðgjafann fór fram
heima hjá mér sem mér fannst mjög afslappað. Þetta var í ágústmánuði þegar fyrirtækið var
nýstofnað. Það tók tíma að finna konu fyrir mig en eftir stefnumótið við Katrínu fannst mér það
alveg biðarinnar virði. Við gerum okkur grein fyrir að við vorum heppin að finna hvort annað á
fyrsta stefnumóti. Þær stöllur á skrifstofunni stóðu vel að málum og svöruðu spurningum okkar
greiðlega. Þær fylgjast spenntar með okkur turtildúfunum. Við getum svo sannarlega mælt með
þjónustu þeirra.
Jakob (62)
